Kynning í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag 20.mars

Í tilefni af nýrri úthlutun Rannóknarsjóðs fyrir styrkárið 2009 verður dagskrá í ráðhúsi Reykjavíkur í dag föstudaginn 20.mars. Sjá á vef Rannís.

10 hugmyndir komnar í úrslit í Gullegginu 2009

Dómnefnd Innovit hefur valið þær 10 viðskiptahugmyndir sem keppa um gulleggið 2009. Hægt er að lesa um þessar viðskiptahugmyndir á vef Innovit.


Námskeið hjá Nýsköpunarmiðstöð

Námskeiðið Stofnun og rekstur fyrirtækja hjá Nýsköpunarmiðstöð verður haldið 21.mars í Reykjavík. Nánar á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Kynning á auglýsingum um styrkjaumsóknir í sjóði Samkeppnis- og nýsköpunaráætlunar ESB

Haldinn verður kynningarfundur um styrki fyrir 2009-2010 á Nýsköpunarmiðstöð Íslands þann 24.mars. Sjá nánar hér.

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapa væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 25.mars 2009. Sjá nánar á vef Rannís.

Sóknarbraut Akureyri

Nýsköpunarmiðstöð stendur fyrir námskeiðinu Sóknarbraut sem verður haldið á Akureyri og byrjar 19.mars. Sóknarbraut er hagnýtt námskeið um rekstur fyrirtækja með áherslur á þróun hugmynda, markaðssetningu, stjórnun og fjármál. Sjá nánar á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Evrópusamvinna 2009

Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja- og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana. Kjörið tækifæri fyrir einstaklinga, skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til samstarfs á felstum sviðum menntuna, menningar og atvinnulífs. Sjá nánar á vef Iðnaðarráðuneytisins og evrópusamvinna.is


Frumkvæði - færni - forysta

Ráðstefna MBA 2009 með yfirskriftinni Frumkvæði, færni, forysta - lykilþættir til að koma nýjum hugmyndum í framkvæmd. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica þann 19.mars og hefst kl 08:00. Nánari upplýsingar á vef Háskóla Íslands.

Hávarp Háskólans í Reykjavík

Á vef Háskólans í Reykjavík er hægt að hlusta á erindi á netinu á svæði sem heitir Hávarp. Þar er meðal annars að finna fyrirlestur frá 15.janúar um virði nýsköpunar í niðursveiflu. Sjá nánar á vef Háskólans í Reykjavík.


Iðnþing 2009 - upptaka

Hægt er að sjá af vef Samtaka Iðnaðarins upptöku af Iðnþingi þar sem efnahagsmálin voru til umræðu og bar yfirskriftina Vöxtur og Verðmæti - Mótum eigin framtíð.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband